Eva

Fyrirsagnir dagblaðanna í dag

Fyrir fólk sem hefur afburða þroskaðan og góðan húmor eins og ég og fleiri í kringum mig þá mátti finna á síðum blaðanna í dag fyrirsagnir sem fá 10 í húmoreinkun...

Í 24 stundum í dag má sjá fyrirsögnina "Hestamenn fá slæma útreið"...
Og Fréttablaðið átti fyrirsögn sem by far slær 24 stundum út... "Hálf ríkisstjórnin í hópreið"

Ég ætlaði ekki að geta hætt að flissa í hádegishléinu áðan Tounge

Ég veit - þroskað hehe ég bara ræð ekki við mig Grin

Þar til næst - síja ;)


Ferðablog Lúlla

Þegar ég vaknaði af þessum alræmda "bloggdvala" sem kemur stundum yfir mann þá tók ég til í linkunum mínum hérna til vinstri, bætti við og lagaði og svona smá dúllerí...

Mig langar til að vekja athygli ykkar á tveimur bloggum sem eru þarna í "bloggvinahópnum"...

Annað er bloggið hjá Lúlla litla bró en hann er staddur eins og er í Kína með tveimur félögum sínum.
Í apríl fór hann til Ástralíu, tryllti lýðinn þar, kafaði meðal hákarla í the Great Barrier Reef, klappaði kengúrum og kóalabjörnum, hoppaði út úr flugvél og gott ef hann restlaði ekki eins og einn krókódíl og eitthvað af snákum svona Steve Irwin style bara svona fyrir mig og margt fleira Tounge. Þaðan lá leið hans yfir til Japan þar sem hann gisti í hólfum á farfuglaheimilum, skoðaði götutískuna í Tokyo, borðaði kjöt af óþekktum uppruna, kíkti til Hirosima og á fleiri merkilega staði. Eftir það skelltu þeir sér til S-Kóreu og þaðan til Kína. Núna eru sirka tvær vikur í að hann komi heim - ekki laust við að stóra systir sakni litla bró eftir þennan tíma. Það verður geggjað að sjá myndir frá þessu ævintýri... ég er svo stolt af stráknum mínum Wink

Lúlli í Ástralíu   Lúlli að skella sér í köfun

Hitt bloggið er svo hjá tveimur öðrum vinum hans Lúlla, þeim Krissa og Eysa sem eru staddir í austurlöndum, nánar tiltekið í Pakistan í augnablikinu. Þar hafa þeir farið á puttanum og upplifað ótrúlegustu hluti og bloggið þeirra er mjög áhugaverð og skemmtileg lesning... eiginlega ekki hægt að lýsa því sem þeir eru að lenda í þarna - en ég mæli með því að þið gluggið í það Grin

Jú og svo verður maður að benda á bloggið hans Einars veðurfræðings... eina veðurfræðingsins sem ég tek mark á... Mjög fróðlegt að kíkja á það.

Þar til næst - síja ;)


Hæhó og jibbíjey....

Gleðilega hátíð allir saman !!

Sjáumst í bænum með candy floss Tounge

Þar til næst - síja ;)

Húrra fyrir því...

Jáhá... þetta verður "hamingjusamari" endir í þetta skiptið.

Húrra fyrir því Smile

Það verður gaman að fylgjast með því hvernig atburðir þróast í framhaldi af þessari ákvörðun... ég mun verða á "refresh" takkanum á mbl.is og fylgjast spennt með

Mér finnst skipta miklu máli að reyna að halda honum á lífi sem fyrsta kost. Svo getur vel verið að nauðsynlegt verði að deyða björninn að lokum en þá getum við allavegana sagt að við reyndum það sem við gátum í staðinn fyrir að ana út með byssur við fyrsta tækifæri.

Líffræðingurinn gleðst.

Þar til næst - síja ;)


mbl.is Erfið aðgerð framundan að Hrauni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hæhó :þ

Híhí... já svona í tilefni að því að mig dreymdi í nótt að ég væri að blogga þá ákvað ég að skella smá inn hehe...

Þar til næst - síja ;)


Hugleiðingar

Fyrir næstum því árið síðan strandaði Wilson Muuga...
Þá fegnum við útkall í leit að skipverja Triton sem hafði ekki tekist að bjarga um borð í þyrluna eftir að þeir lentu í vandræðum við björgunaraðgerðir.
Það var óhugnanleg tilfinning því þetta minnti mann á að það getur alltaf eitthvað farið úrskeiðis hjá okkur í björgunarsveitum þegar við erum að vinna í svona erfiðum aðstæðum.
Sem betur fer er það afar sjaldgæft að björgunarfólk slasist eða látist við störf.

Nokkru seinna fórum við þrjú úr sveitinni í minningarathöfnina sem var haldin um borð í Triton - og mikið svakalega tók það á að sjá hvað strákarnir áttu erfitt eftir þetta atvik... ósjálfrátt setti maður sig í spor þeirra, hvað ef þetta væri einn af mínum félögum... skelfilega erfið tilhugsun...

Þetta rifjaðist upp fyrir mér þegar ég sá Kastljós á miðvikudagskvöld. Þáttinn má sjá hérna.

Þar til næst - síja ;)


Öppdeit rétt fyrir mánaðarmótin

Ég "lofaði að koma með svona eins og eina færslu fyrir mánaðarmótin... þetta er alveg rétt að sleppa hjá mér... já ég held að ég fái seint vinnu við blogga... ég er arfaslök í þessu hehe...
En já... það orsakast einna helst svona af því að ég er úber bissí þessa dagana... eða svona síðastliðna 2 mánuði frekar. Ég hálf skammast mín fyrir að vanrækja ykkur stelpurnar svona á meðan ástandið er svona Blush Sorry stelpur - þið verðið að sparka í mig hehe ég gleymi mér stundum alveg í "áhugamálinu".

Til að stikla stóru hvað ég hef verið að bralla síðustu mánuði þá má m.a. nefna :
- Námskeið í straumvatnsbjörgun sem stóð í 4 daga og var kennt af tveimur Ameríkönum. Geggjað námskeið þar sem við vorum bara að leika okkur í Soginu og í fleiri ám og læra helstu undirstöðuatriðin í björgun í straumvötnum

- Nú svo var hin víðfræga ferð með nýliðana á Hengilsvæðið... Það átti að verða svona rölt ferð og svona frekar létt á því bara. Planið var að labba frá Hellisheiðarvirkjun og inn í Marardal sem er hinumegin við Hengilinn og gista þar í tjöldum. Á laugardeginum átti svo að labba á Skeggja og svo áleiðis niður í Hveragerði - sem sé stutt og skemmtilegt labb Tounge
Þegar við vöknuðum á laugardagsmorgninum þá var byrjað að snjóa... og hvessa... Þetta endaði semsagt í því að helmingurinn komst á toppinn en hinn helmingurinn treysti sér ekki vegna veðurs... Að lokum skiptist hópurinn niður í nokkra litla hópa þar sem nýliðarnir fóru mis hratt yfir. Þessir hópar voru svo dreifðir hér og þar um Hengilsvæðið... Hóparnir tóku stefnuna á stystu leið niður þar sem bílahópur var búinn að miða staðsetningu hópanna út... Þetta tókst með herkjum en nýliðarnir stóðu sig eins og hetjur... Svona sem dæmi um hversu kalt það var orðið þarna undir restina þá var Pálmi orðinn þvoglumæltur í talstöðinni og ég átti mjög erfitt með að nota fingurna til að nota talstöð og síma og  að setja punktinn inn í GPS tækið þegar Teddi gaf mér upp staðsetninguna á bílnum sínum. Allan tímann vaðandi í allt að hnédjúpum snjó og í heví vindi og snjókomu/ísnálum.
 Þetta var orðið frekar slæmt veður þarna og þetta minnti mann svona helst á frásögn Einars Elí frá fjallamennskunámskeiðinu sem ég linkaði inn á um daginn... svona míníútgáfa...
Afföllin í nýliðahópnum voru nú ekki mikil eftir ferðina enda er hópurinn meira eða minna algjörir naglar sem létu þetta ekki ásig fá Wink

- Ég lék í kvikmynd fyrir Baltasar Kormák... sem ég man ekki einu sinni hvað heitir... líklega Brúðguminn eða eitthvað slíkt... ég lék björgunarsveitarmann hehe Surprise :-Þ

- Ég fór á Gufuskála á Snæfellsnesi í 8 daga á námskeið í fyrstu hjálp sem kallast Wilderness First Responder. Það var bara snilld !! Núna er ég komin með fyrstuhjálparnördabakteríuna hehe ég verð að eignast úbernördasjúkratösku með öllum "nauðsynlegustu" græjunum hehe... Ég hef mikið gert grín af vinum mínum sem missa sig í fyrstu hjálpinni og græja sig upp og skella sér á sjúkraflutningsnámskeið í útlöndum... Það verður ekki gert meira grín hehe ég skil þetta núna :-Þ

- Ég kenndi formlega mitt fyrsta námskeið í Leitartækni fyrir Björgunarskólann og get því titlað mig Leiðbeinanda hjá Björgunarskólanum. Fínasta aukavinna að fá borgað fyrir það sem mér finnst skemmtilegast að gera...

- Ég fór í Laugavegsgönguna hjá Björgunarsveitinni. Þetta er hin árleg keppni í að ganga Laugaveginn í einum rykk á sem stystum tíma... Ég ákvað að labba hálfan Laugaveginn og labbaði frá Landmannalaugum inn í Álftavatn á um 7 tímum að mig minnir... létt rölt í góðum félagsskap Svavars, Pálma og Elínar.

- Ég fór með nýliðana inn í Hólaskjól síðastliðna helgi og kenndi þeim leitarfræðina... Fengum snjó og fínerí... kalt og hressandi :-Þ elska snjó :-Þ Og núna sit ég heima og er að fara yfir 23 próf í leitartækni...

- Á  meðan á öllu þessu stóð eignaðist Ronja mín unga... svo mikil krútt... hún eignaðist 4 stykki, eina stelpu og þrjá stráka. Þeir eru allir "farnir að heiman" núna og ég sakna þeirra pínu... en samt ekki... þeir átu ekkert smá mikið hehe... og svo var kominn unglingaveiki í strákana og þeir slógust eins og hundur og köttur í búrinu og Ronja réði ekki við neitt... nema að þetta sé bara að vera alinn upp í gettóinu í vesturbænum hehe Þeir voru mestu krútt í heimi, ekkert smá sætir !!!

Já svona er maður nú bissí... kannski er ég að keyra mig aðeins of mikið... en ég geri nú ráð fyrir að þetta róist jafnvel aðeins eftir áramót... - fer samt eftir ýmsu sko Wink

Annars er uppáhalds tími ársins að renna í hlað. Það er farið að vera smá kalt úti, smá frost í jörðu þegar maður fer út á morgnanna og ekki skemmir fyrir að vakna og líta út um gluggann og sjá snjó. Ég er voða mikið vetrar/jólabarn og nýt þess í botn þegar það er svona kalt úti... allt frá því að ferðast upp á hálendi niður í það að fara á kaffihús eða bara kósa mig í teppi og horfa á vídjó og hlusta á haustlægðirnar... allt verður einhvernvegin miklu meira sjarmerandi núna. Mig er farið að hlakka til að jólaskreyta íbúðina mína í fyrsta skipti. Þetta er ekkert smá fljótt að líða og bráðum er liðið ár frá því að ég varð íbúðareigandi.

Þar til næst - síja ;)


My Little Pony

Jáhá....

Ég er gjörsamlega að missa mig yfir þessari "frétt"

Ég hef nokkrum sinnum farið á hestbak... ég sé það núna að ég hef verið eins og villimaður... á hesti sem var ekki með glimmerhófa, hjörtu og hárnæringu í faxinu Gasp

Já það sönglar í hausnum á "My little Pony" theme lagið"

"allt sem þarf til að gera hestinn kláran í hvaða veislu sem er"
Jáhh... ég hef ekki ennþá mætt í veislu með hestum... greinilegt að þeim hefur verið úthýst þar sem þeir hafa verið alveg ótilhafðir.

Hvað er annars málið að hafa svona auglýsingu sem forsíðufrétt á mbl.is... frí auglýsing eða ætli svona fyrirtæki geti greitt fyrir að fá að vera "frétt" á forsíðu ??

Snilldar fyrirsögn á blogginu hjá Jóni Agnari... ég pissaði næstum því á mig...


Já og kanski ég birti svona eins og eitt blog í viðbót áður en að mánaðarmótum kemur Tounge


mbl.is Glimmerhófar og glansandi fax
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Já, góða kvöldið... uhh... er þetta löreglan...?"

haha... ég heyrði með öðru eyranu hádegisfréttirnar í dag. Þá heyrði ég "bornir ofurliði" og "lögregla vopnuð kústsköftum"... Nú hefur eitthvað svakalegt gerst hugsaði ég og varð að kíkja á mbl til að sjá hvað væri í gangi...

Og jú... ég er heldur betur ekki svikin af þessari frétt - þvílík snilld hehe
Manngreyið. Ég sé hann svo fyrir mér á svölunum skjálfandi á nærbrókunum einum fata haha

Þetta er svosem ekkert grín ef ég fer að hugsa út í símtalið sem ég gæti átt við lögregluna
"Já, góða kvöldið... uhh... er þetta lögreglan...? Já halló... mig vantar aðstoð... Það réðust hérna tvær hústökuhrossaflugur inn til mín, þær eru búnar að hreiðra um sig inni í svefnherbergi og láta heldur ófriðlega..."

Þar til næst - síja ;)


mbl.is Lögreglan stöðvar kattaslag um miðja nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaðahvaða...

Haha voða viðkvæmni er þetta í fólki...

Þessi auglýsing er bara fyndin... t.d. tveir mega fyndnir punktar sem ég flissaði mikið yfir... síminn hringir og það stendur "Jesu" á skjánum og svo þegar Júdas spyr Jesú "er búið að segja gjörið svo vel?"

Hvernig er ekki hægt að flissa yfir þessari auglýsingu - nema þá til að flissa meira yfir öllu þessu hörundsára guðsfólki Woundering

Annars varð ég bara að vera með í "bloggæðinu" um þessa frétt - bara til að vera eins og allir hinir Tounge

Þar til næst - síja ;)


mbl.is Biskup segir nýja auglýsingu Símans smekklausa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband